mánudagur, febrúar 13, 2006

Þetta er fyrsti kaflinn í bókinni minni, hahhaha, var að pæla í hvort þið væruð í stuði til að skálda smá skáldaðan-DRAMA hehehe hér á netinu. ... bara að pósta nýjum kafla eða brota af kafla hahah hvað sem ykkur listir og langar að setja inní hehe

1
Guð minn góður hvað það er heitt í dag:

Hugsaði Ásta meðna hún ákvað að vera ekki í nærbuxum, hún hafði ákveðið að í dag væri dagurinn til að reyna á eitthvað brjálað, eitthvað sem hana hafði aldrei dottið í hug að hún gæti gert.

Hún horfði á sjálfan sig í speglinum rétt áður en hún ákvaða að stökkva út um dyrnar, já hún var enn falleg, nýja hárgreiðslan fór henni vel og hárgreiðslukonan hafði lagað hárið hennar svo fallega í gær að hún hafði meira að segja passað sig að þvo það ekki þegar hún fór í sturtu um morguninn.

Það heyrðist heldur mikið í skónum ellegar söndulunum sem hún var í, því þeir voru fremur þungir og með meðal háum hæl, þeir voru bara svo sumarlegir að hún gat ekki staðist freistinguna. Enda juku þeir svo kvennlega útgeislun hennar, það hafði Kalli sagt henni einn daginn þegar hann hafði komið yfir til að horfa á boltan með Eggerti, já þeir juku útgeilsun hennar enda pössuðu þeir svo vel við klæðnaðinn sem hún hafði eitt rúmum tveimur tímum í að velja. Í sameiningu faldi fatavalið hennar verstu eiginleika hennar og lagði áherlsu á bestu líkamshlutana hennar, bakið og kálfarnir var það sem henni fannst fríðast við sjálfan sig, hnésíða pilsið og hælasandalarnir sýndu lappirnar og ný paticure-aðar tær, bolurinn var ber í bakið svo að það fengi að njóta sín.

Maðurinn hennar Eggert sagði aldrei svona hluti við hana, hann var ekki svona töfrandi eins og Kalli, Karl Hafgrímsson. Eggert horfði bara á sjónvarpið, sérstaklega þegar boltin var í gangi en Ásta hafði alltaf fundið til þeirri tilfinningu að Kalli horði á hana þegar hún kom inn með eitthvað snakk til þeirra, hann horfði hana þessum löngunar, ástríðar, sakleysis augum.

Hún flissaði með sjálfri sér við tilhugsunina að hún væri virkilega að fara að gera þetta, labbaði upp að hurðinni og var að fara að banka þegar hún efaðist, hvað væri hún að gera, hvað ætlaði hún að segja, guð hvað ef hann myndi hlæja að henni

-Hvað ef hann hlær að mér: sagði hún óvart aftur og upphátt meðan hún steig eitt skref aftur á bak, hún tók snökkt fyrir munnin á sér og fannst hún allt í einu vera að missa kjarkinn sem hún hafði verið svo full af fyrir 10 mínútum.

Hún stóð í smá stund á sama staðnum og íhugaði, hann var einn heima hún var viss um það, Eggert kæmi ekki heim fyrr en á morgun rétt fyrir grill-partyið sem þau voru að fara að halda fyrir nokkrar vini og hún var búin að eiða svo miklu púðri í þetta hvort eð er.

Hún ákvað að banka og láta straumin taka völdin, hætta við ef hún findi að stemmingin var ekki rétt.

Hurðin opnaðist eftir smá bið og Kalli birtist í hurðinni með smá handklæði í kringum mittið og allur votur, ef þetta svo ekki skilaboð að ofan þá vissi hún ekki hvað.

-Nei Ásta, hæ.... sagði Kalli og horfði á hana með svip sem sagði “hvað ert þú að gera hér”

- Hæ, ég var að velta því fyrir mér hvort ég mætti ekki koma í heimsókn, það er ekkert hægt að gera í þessum hita.

- Ja, jú auðvitað... komdu inn, ég verð bara að skella mér í eitthvað, tekur enga stund... tók mér kalda sturtu hehehe einmitt út af hitanum, komdu inn.

Hún steig inn og langaði mest að rífa af honum handklæðið og kasta sér á hann, þessi stinni líkami hafði ásótt hana í draumum hennar allt of lengi, ímyndanir, fantasíur um að gera eitthvað með honum og lifa lífinu. Já með honum gæti hún fundið þá tilfinningu að hún væri lifanid það var hún viss um og núna langaði hana að svala þorstanum með honum.

En hún stóð bara þarna í anderinu og pældi í þvi hvort hún ætti að fara úr skónnum eða ekki, það var eins og kalli sæi það á henni og sagði við hana að hún mætti alveg vera í skónum.

Hún horfði á hann stinga sér inn í herbergi og hugsaði með sér afhverju hann hafði ekki getað lesið allar hugsanir hennar og gert henni lífið léttara með að bara taka völdin.

Þegar hann kom út þá hafði Ásta misst allan kjark og skotist út, skilið eftir smá miða sem á stóð

“ Þurfti að þjóta, svoldið kom uppá við sjáumst bara í grillinu á morgun Ásta”

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home